jawohl.. ég er of dugleg hérna á þessari síðu.. og er að spá í því að halda því bara áfram!
svo brjálað að gera í því að skrifa ekki lokaverkefni og læra ekki spænsku, er alveg beat...
setti samt inn allar myndirnar mínar síðan í feb... segiði svo að maður geri ekki neitt...
Kristín segir frá...
Monday, April 14, 2008
Tuesday, February 26, 2008
vor
vorið er víst komið hérna í münchen.. sumir nágrannar mínir mas byrjaðir að mæta í bjórgarð og hvaðeina.. nú er bara spurning hversu lengi þetta heldur áður en það byrjar að snjóa hér fyrir alvöru!samviskusama ég fór hins vegar ekki í bjórgarð heldur datt í vorhreingerninguna.. eftir skápana í baðherberginu og nokkra í herberginu mínu endaði ég í skóskápnum ... já gott fólk þið lásuð rétt, skóskápurinn fékk að finna fyrir því í dag og ég endaði á að henda þremur pörum (þeas ég er búin að setja þau í poka sem bíður eftir því að verða tekin í næsta fatagám... ásamt pokanum sem lenti niðrí kjallar í haust...)
næsta á dagskránni er svo að strauja dirndlið og gera sig reddí fyrir starkbierfest, á hverja við ætlum að mæta stundvíslega klukkan 4 á föstudaginn... get ekki lofað myndum...
Friday, February 22, 2008
nei, keflavík kom ekki skemmtilega á óvart svo sölutextinn er víst enn óskrifaður..
ísland var annars bara beeery beeery næs, sérdeilis vel heppnuð rannsóknarvinna, sem verður reyndar ekki haldið áfram fyrr en í mars, þegar prófessorinn getur hitt mig...
annars er ég bara búin að vera að vinna eins og mofo síðan ég kom baka til bjórmekkans en hafði samt sem áður tíma til að henda inn nokkrum myndum frá próflokasötri og afmælinu hennar söru sem haldið var hérna í schelling.. enjoy!
ísland var annars bara beeery beeery næs, sérdeilis vel heppnuð rannsóknarvinna, sem verður reyndar ekki haldið áfram fyrr en í mars, þegar prófessorinn getur hitt mig...
annars er ég bara búin að vera að vinna eins og mofo síðan ég kom baka til bjórmekkans en hafði samt sem áður tíma til að henda inn nokkrum myndum frá próflokasötri og afmælinu hennar söru sem haldið var hérna í schelling.. enjoy!
Sunday, February 03, 2008
keflavík
var spurð að því í vinnunni á föstudaginn hvað maður gæti skrifað skemmtilegt og spenanndi um keflavík til að lokka ferðamenn þangað (!).. þeas eitthvað annað en að flugvöllurinn væri þar .. ég er enn að reyna að láta mér detta eitthvað í hug..... kannski ég fái samt mega inspiration þegar ég keyri þar í gegn á morgun..??
Monday, January 28, 2008
ha?
ég leit 2x á dagatalið bara til að athuga hvort það væri nokkuð 1.apríl þegar ég sá þessa frétt ... það er allavega gott til þess að vita að ekkert alvarlegra er að í reykjavík...Friday, January 18, 2008
gleði gleði
brjálaði dhl gaurinn var að dingla hjá mér til að færa mér fínu fínu nýju myndavélina mína :)og þar sem ég er í prófum, verður ekki langt að bíða þess að nýjar myndir verði settar á myndasíðuna...
Thursday, January 17, 2008
1.
dagurinn í dag var mikill merkisdagur á þessu ári þar sem að ég:-eldaði í fyrsta skipti á árinu
-bauð fólki í mat í fyrsta skipti árinu
-reyktí í fyrsta skipti á árinu (very proud moment indeeeeed...)
-fór ekki á netið fyrr en klukkan hálf fimm, í fyrsta skipti á árinu
-drakk vont hvítvín í fyrsta (og vonandi síðasta) skiptið á árinu
-tók djamm framyfir vinnu, í fyrsta skipti á árinu...
ooog eyddi fullt fullt af pening í flug og hótel og stöff, sem var reyndar alls ekki í fyrsta/síðasta skipti á árinu..
klikkaði svo daginn út með því að skoða vandræðaleg videó úr partíium síðasta árs með nágrannanum... allt í allt mjög góður dagur!
jamms ég er í prófum... í fyrsta skipti á árinu...
